hæhæ vinir mínir ...Ég var nú bara að koma af námurokksballinu og
það var bara mjög gaman og skemmtilegt fullt af fólki og góð
tónlist ...(spútnik og auðvitað líka robbi diskó)
en í dag var haldin tónlistarkeppnin í skólanum sem ég og bergur og
siggi og björn erum búnir að vera að plana og héldum hana með pomp
og prakt í í dag ....(við erum tónilstarklúbbur btw)

keppnin var alveg bara rosaleg mjög flott og vel heppnuð



það tóku sex hljómsveitir þátt í keppninni og voru þær allar mjög
góðar og ólíkar
ég var að keppa með tveimur hljómsveitum...hljómsveitinni minni
Synu



og svo var ég að fylla skarðið fyrir hann sigga
smárason, í Ypsilon......
Á ballinu áðan voru svo úrslitin tilkynnt og þar kom í ljós að ég
var valinn besti trommarinn

síðan var darwin blue í þriðja sæti

og Syna var í öðru sæti

svo var Ypsilon í fyrsta sæti !


þannig að ég fór heim hlaðinn viðurkenningum og blómum
....rosa gaman svo vann black sheep fyrir sviðsframkomu og siggi
bach besti gítarleikarinn


Björn besti bassaleikarinn

og
Ylfa besta söngkonan (söngvarinn) síðan vann Hólmsteinn fyrir besta
aukahljóðfæraleik en hann spilaði á trompet

þetta var rooosalega gaman og ógeðslega skemmtilegt....!!
TIL HAMINGJU ALLIR MEÐ ÞÁTTÖKUNA OG VIÐURKENNINGARNAR !!
lag líðandi stundar er .......Suck on the steel með Synu
manneskja líðandi færslu er .......Samúel Þorsteinsson
bæbæ lesið og kommentið eða þið eruð hmmm bara aular
